Hráefnið sem Viktor Örn Bocuse d´Or keppandi Íslands þarf að elda úr ásamt hinum 23 keppendunum verður hinn frægi Bresse kjúklingur og skelfiskur.

Keppendur þurfa að sameina þessi tvö hráefni ásamt meðlæti á fat fyrir 14 manns.  Bresse kjúklingurinn og skelfiskur var aðalhráefnið í fyrstu Bocuse d´Or keppninni árið 1987.

Keppendum verður svo tilkynnt í enda nóvember hvaða hráefni þeir koma til með að elda og framreiða á 14 diskum í keppninni.

Verður gaman að fylgjast með Viktori og hans teymi takast á við þetta verkefni. Viktor landaði eftirminnilega 5. sæti og fékk bestu fiskverðlaun í Evrópu forkeppni Bocuse d´Or í maí á þessu ári.

Vídeó

Bocuse d´Or hinn óumdeilda heimsmeistarakeppni einstaklinga í matreiðslu heldur upp á 30 ára afmælið sitt í janúar 2017

Bocuse D´or Akademía Íslands hlakkar til að sjá sem flesta í Lyon 24-25 janúar 2017 að hvetja okkar mann áfram.

Mynd: Etienne Heimermann