Viktor Örn Andrésson náði 5. sætinu og hlaut sérstök verðlaun fyrir fiskréttinn í Evrópuforkeppni Bocuse d´Or sem haldin var í Búdapest dagana 10.-11. maí. Ungverjaland sigraði keppnina, Noregur var í 2. sæti og Svíþjóð í 3. sæti.

Allt gekk samkvæmt áætlun og voru Viktor, Hinrik Lárusson aðstoðarmaður hans og Sigurður Helgason þjálfari hæstánægðir með úrslitin og verðlaunin fyrir fiskréttinn. Þessi glæsilegi árangur tryggir Viktori keppnisrétt í aðalkeppni Bocuse d´Or í Lyon 24.-25. janúar 2017.