Viktor Örn Andrésson er byrjaður á undirbúningi sínum eftir sumarfríið og byrja æfingar formlega um miðjan september næstkomandi.

Eins og fram hefur komið þá náði Viktor Örn 5. sætinu í Evrópuforkeppni Bocuse d´Or sem haldin var í Búdapest í maí s.l. og að auki hlaut hann sérstök verðlaun fyrir fiskréttinn.

Viktor keppir í aðalkeppni Bocuse d´Or í Lyon í Frakklandi dagana 24.-25. janúar 2017.  Hinrik Lárusson er aðstoðarmaður Viktors, aðstoðarmaður númer tvö er Sölvi Már Davíðsson og Sigurður Helgason er þjálfari.